Fréttaskot

Vígsla skíðaskotfimisvæðis Skíðafélags Strandamanna í Selárdal

Vígsla skíðaskotfimisvæðis Skíðafélags Strandamanna í Selárdal

Skíðafélag Strandamanna hefur unnið hörðum höndum í vetur við hönnun og framkvæmd skíðaskotfimisvæðis á Hólmavík.

Skíðaskotfimisvæði SFS er staðsett á gönguskíðasvæði félagsins í Selárdal. Skotsvæðið sjálft rúmar allt að 15 skotmörk af 50 metra skotfæri. Í kringum skotsvæðið er 3-4 metra háir veggir fyrir aftan skotmörk og til hliðar. Við hlið skotsvæðisins er búið að landmóta fyrir refsihring, 150 metra langur fyrir fullorðinsflokk og 75 metra langur fyrir ungmenna flokk. Svæðið er hannað og unnið út frá stöðlum, IBU, Alþjóða skíðaskotfimisvæðisins, og með því er Skíðafélag Strandamanna með fyrsta skíðaskotfimisvæði á Íslandi. 

Skíðafélagið naut góðrar aðstoðar frá Magnúsi Steingrímssyni, Eggert Kristjánssyni frá Strandatrölli ehf og Kristjáni Guðmundssyni. Við þökkum þeim kærlega fyrir alla þeirra vinnu og aðstoð við gerð svæðisins. 

Skíðaskotfimisvæðið var vígt formlega á bikarmóti SKÍ í skíðaskotfimi laugardaginn 7 mars sl. Þar voru mættir gestir og þátttakendur mótsins ásamt Sigurði Haukssyni, framkvæmdastjóra Skíðasambands Íslands. Sigurður og Ragnar Bragason, formaður Skíðafélags Strandamanna, klipptu á borðann og fengu að skjóta fyrstu skotunum á nývígðum velli ásamt öðrum stjórnarmönnum Skíðafélags Strandamanna. 

Í framhaldi hófst bikarmót í skíðaskotfimi og voru 15 þátttakendur í ungmennaflokki og 10 þátttakendur í fullorðinsflokki. Úrslit mótsins má finna hér:  TÍMATAKA: Skíðaskotfimimót 2026: Hólmavik

Engin ummæli enn
Leit