Fréttaskot

Strandagangan 2026

Strandagangan 2026

Strandagangan 2026 fór fram á Þröskuldum sunnudaginn 8. mars

Strandagangan fór fram á Þröskuldum sunnudaginn 8 mars. Snjóaleysi vetrarins hefur haft áhrif á okkur og enginn snjór var í Selárdal til að halda gönguna. 

Strangagangan gekk vel fyrir sig, en þar var keppt í 4 km, 10 km og 20 km skíðagöngu með hefðbundinni aðferð. Þátttakendur í ár voru 74 og skiluðu sér allir í mark. Gangan byrjaði vel en þegar leið á þá urðu aðstæður erfiðari vegna snjókomu en ekkert sem hafði veruleg áhrif á þátttakendurnar.

Dagurinn endaði svo með kökuhlaðborði í Félagsheimilinu á Hólmavík þar sem veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum flokki fyrir sig. Úrslit Strandagöngunnar má finna á   TÍMATAKA: Strandagangan 2026   

Á kökuhlaðborðinu fengu fjórir viðurkenningu fyrir 10 gengnar Strangagöngur og óskum við þeim innilega til hamingju með áfangann og þökkum þeim fyrir þátttökuna undanfarin ár. 

Einnig voru veitt fjögur heiðursverðlaun þar sem þakkað var fyrir brautryðjendastarf, óeigingjarnt vinnuframlag og eljusemi í þágu félagsins. Heiðursverðlaunahafar eru Hjörtur Þór Þórsson, Hildur Pálsdóttir, Magnús Steingrímsson og Marta Sigvaldadóttir.

Engin ummæli enn
Leit